Miðasölutölur
Miðasölutölukerfi
Í notkun hjá danskri bókunarskrifstofu og hjá Luftens Helte
Safnar miðasölutölum allra tónleika á einn stað og sýnir hvernig miðasala atburðarins þróast. Kerfið sýnir jafnóðum hvaða tónleika þarf að veita meiri athygli t.d. er varðar markaðssetningu.
Varningur

Varningsapp
Í notkun hjá Luftens Helte
Tengir sölu í vefverslun við sölu á tónleikum svo lagerinn stemmi alltaf. Appið sýnir söluþróun eftir vöru og tónleikaferð svo rétt sé pantað fyrir næsta skipti.
Fjármál
Fjárhagsáætlun og sjóðstreymi
Í þróun
Verkfæri sem sameinar fjárhagsáætlun, bókhald og sjóðstreymi fyrir hljómsveitir og félög. Það á að vera léttara en bókhaldskerfi og öruggara en töflureiknir, með sviðsmyndum og sjóðstreymi þar sem færa má framtíðarfærslur til og sjá áhrifin á sjóðsstöðuna.
Ráðgjöf
Ég aðstoða einnig við að sjálfvirknivæða vinnuna milli kerfanna sem þið notið nú þegar: dagatal, launaseðla, fréttabréf og vefverslun.